MELONURNAR
28.01.2007 16:57:46 / Tinna Lind

6/10 ;)

Ég er búin með 6 ökutíma og þá eru bara 4 eftir þangað til að ég fæ æfingaakstur og þá verður sko keyrt, svo er Fanney að fara í sinn fyrsta tíma á eftir en Katrín tekur þessu bara rólega ;) haha ég á afmæli seinast en er samt komin lengst að æfa mig :D

En hérna er svo sonna jeppi eins og ég og Fanney erum að læra á

Svo var X-factor á föstudaginn og við fórum nokkur saman að horfa á Guðbjörgu :D Það var mjög gaman og hún stóð sig mjög vel og er nú komin áfram þannig að þá er bara málið að allir kjósi hana :D Go Guðbjörg :D:D

Hérna er svo mynd af géllunni eftir þáttinn

Svo í gær fórum við loksins á Footlose :P Það var bara pínu vesen í þetta skipti en sýningin var mjög góð :D
-------Farin að læra ;) :*
btw: það eru komnar fleiri myndir í söngball 2. hluti ;)

» 8 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 19:02:54 / Katrín

Komin aftur ;)

Jæja gott fólk þá er ég komin aftur á þessa síðu og vonandi halda stelpurnar að vera ennþá svona duglegar :) ...en það er samt ósköp lítið að frétta af mér...bara þetta týpíska skóli, vinna og svo fórum við melónurnar á söngball mr í gær á broadway...það var ágætt sko ;) ...var að setja myndir frá því inná og svo eiga eftir að koma myndir frá Tinnu vél og svo eru einhverjar á bekkjarsíðu Tinnu en svo er bara vika í Némó :D ...hlakka geðveikt til !! ..en bara heyrumst folks....

Katrín


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 18:16:04 / Fanney

Atvinnu laus Krakk hóra

hæj ! já það er satt.... ég er orðin atvinnulaus krekkhore... :P neij ég lít alltaf á björtu hliðannar. Fyrirtækið er örugglega að fara á hausinn og þau voru að hleypa mér fyrr útá atvinnu markaðinn, svo að ég gæti fengið forskot að ná í nýja og betri vinnu. Áður en fyrirtækið hjá þeim hrynji.

Svo .... hvað á ég að gera við allannn þennan frítíma.... mér finnst ég einvhað svo frjáls. En það er óðæginlegt að geta ekki verið í neinni vinnu, ekki fá glaðining á hverjum nýjum mánuði. Heldur að lifa hvern einasta dag, og hafa ekkert fyrir stafni nema dag drauma sem koma mér hvergi. Svo áður en ég dettt í þessa ömurlegu rútínu, að borða ís og fitna og gráta mig í hel. Þá ætla ég frekar að taka mér frí í eina viku. Fara svo út og leita af vinnu án þess að fá hjálp frá neinum nema Guði. Því hann er sá eini sem getur hjálpað mér.

Ég er tilbúin að prófa einhvað nýtt.. Svo ég ætla að fara á nýjar slóðir og leita mér af vinnu sem búa mig ennþá betur undir lífið :D

Kv. Krakkhóra í atvinnuleit !


» 10 hafa sagt sína skoðun

21.01.2007 23:08:04 / Fanney

¨Míns er sátt

Ég er svo sátt.. að þú skulir loksins sjá í gegnum Dúdda innst í sjálfri þér. Það er svo gott að eiga vinkonu einsog þig :D En hey ekki gleyma síningin er eftir VIKU ! sé þig þá sætust :D ;) Must LOVE (K) (L)


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.01.2007 17:58:13 / Tinna Lind

Á skíðum skemmti ég mér trarallalla...

Ég fór á skíði í dag :D það var svoo gaman, fór með familíunni, en það var mjög fínt :) Írena litla systir mín fór í stólalyftuna algjör dúlla en ég var fyrst aðeins með henni í barnalyftunni, henni fannst það sko ekki cool :P Þetta er í fyrsta sinn í vetur sem ég hef komist á skíði en svo var eikkað vesen, ég var í allt of þröngum skóm og fékk alveg náladofa en það vandist fljótlega, en skórnir voru samt of stórir fyrir skíðin og pabbi kunni ekkert að stækka festingarnar á skíðunum þannig að ég talaði við eikkern kall sem sagði mér að fara að skálanum þar sem lyfturnar eru svo ég labbaði þangað en þá sögðu mennirnir þar að þeir gætu ekkert hjálpað mér en ég mátti nota skrúfjárnið þeirra. Svo fór ég eikkað að prófa að skrúfa þetta en það virkaði ekkert þannig að ég bara blikkaði einn manninn sem var að vinna þarna og hann bara lánaði mér sín skíði :D Maður reddar sér alltaf :D  en hérna fáiði að sjá sönnun. Þetta er ég og Írena

 
 
Svo verð ég að segja ykkur eitt það dúddalegasta sem ég veit. Fanney hringdi í mig og sagði að seinasta sýningin á footlose væri á laugardaginn eða í gær og sagði að ég þyrfti að panta miða á netinu því hún var ekki með netið. Svo bara pantaði ég miða fyrir mig, hana og Emblu og við fórum í borgarleikhúsið í gær og alla leiðina var Embla að kvarta því hún var ómáluð og með tagl í ,,leikhúsi" og það virkaði ekkert að sannfæra hana. En svo hittum við borgarstjórafrúnna og heilsuðum henni og hún bara hæ, hvað eruð þið að gera hér og við bara sögðum að við værum að fara á footlose en svo þegar ég spurði um miðana þá bara voru engvir miðar á okkar nafni, neinei þá er bara footlose næsta laugardag :S ....og þá loksins varð Embla glöð, því hún gat málað sig og slétt á sér hárið oh hún er algjör gelgja, En Fanney var svo fúl útí mig.. enda var það ekki von því ég er svo mikill Dúddi.. ég meina ég hefði geta kíkt á síningartímann.. og gáð hvort að það væri ekki rétt hjá Fanney. En það er svona að vera einsog ég, þið megið öll kalla mig Tinnu Dúdda :D ókei fanney ertu sátt !
 við fórum bara í bíó á happy feet og það var mjög gaman :D Svo er það bara footlose næsta laugardag :P en hérna er mynd af okkur í bíóinu, Ég og Embla báðar ómálaðar :P
 
 
En svo á föstudaginn var sonna dagur í skólanum til að safna pening fyrir fátæk börn og þá voru sonna áheit og fólk skrifði undir, okkar bekkur safnaði ca. 40.000 kr Davíð Þór kom klæddur sem kona (Dóra Stóra) og Sandra var í nærfötunum yfir fötunum og ég og Guðný reyndum við alla karlkyns kennarana og svo var eikkað meira líka, þetta var mjög fyndið :D hérna kemur mynd af Dóru og Söndru, kannski kemur seinna mynd af okkur Guðnýju með kennurunum ;)
 
 
 
 
 
Ókei þá er ég bara eftir að segja að á miðvikudaginn vann Mr Kvennó í Gettu betur og það var mikil stemning í útvarpshúsinu :D Just look :D


Hanna, Sandra og ég!


Snillingarnir okkar 0


dubb döbb dubb döröröbb döbb döbb, durubb döbb dubb duröröbb MR!

Svo seinustu helgi kom Sandra María til mín og fórum að hitta eikkað fólk, fórum á rúntinn og fun en þið getið lesið meira um það á hennar síðu ;) http://www.blog.central.is/sandra-m-69

Þessi síða fær sko ekki að deyja ;) Katrín viltu ekki koma aftur :D ?


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 23:06:57 / Tinna Lind

ökuskóli 1

einhver verður nú að blogga fyrst katrín er hætt:cry: ég er byrjuð að læra á bíl og er ótrúlega góð í því svo áðan var ég í ökuskóla 1 og dró fanney með mér, það hefði líka ekki verið gaman að vera þarna í 3 kls þannig að hún hringdi bara í gaurinn sem er að kenna mér á bíl, hann er nebbla geggjað næs og við erum saman í ökuskólanum, eigum báðar afmæli í október ;) en þessi dagur er búinn að vera mjög spes, ég fór á bókasafnið beint eftir skóla að læra og svo kom ég heim fékk mér að borða og svo beint í ökuskólann þannig ella búin að vera yfir bókum í allan dag og svo stærðfræðipróf á morgun sem ég þarf að fara að læra undir núna, er ekki búin að læra mikið fyrir það, en svo er bara málið að fara að gera eikkað skemmtilegt bráðum :D ...fanney? ;) tinna the blogger er farin að læra :P


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 11:51:00 / Katrín

HÆTT!!

hæhæ...ég er hér með hætt í þessarri síðu ....nenni ekki að vera alltaf eina sem bloggar reglulega....svo er heldur enginn sem skoðar þessa síðu .....gangi ykkur bara vel með hana stelpur ;) ....sé ekki fram á að þið munið blogga mikið en bara gangi ykkur sem best... ;) ...

kveðja Katrín


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.01.2007 14:02:28 / Katrín

Halló :D

hæhæ...langt síðan síðast...vill bara byrja á því að segja gleðilegt ár ;) ...það sem komið er af þessu ári er bara búið að vera fínt :) ...skólinn byrjaður á fullu aftur og svona ...svo er ég bara ennþá að vinna.....síðasta föstudag fór ég með stelpunum í bíó á Children of Men ...ágætis mynd svo sem en mæli svo sem ekkert mikið með henni....svo eftir hana tókum við bara strætó uppí spöng og strætóbílstjórinn var sko brjálaður:evil: ...en já við fórum semsagt uppí spöng og leigðum okkur You, Me and Dupree og keyptum okkur allar sitthvorn mars ísinn :D byrjuðum aðeins að horfa á myndina en svo kom Guðjón og við fórum á rúntinn....vorum bara eikkað að keyra um grafarvoginn en sóttum svo einhvern sem ég man ekki hvað heitir :$ og fórum niðrá hverfisgötu 59 ef ég man rétt og ætluðum í eikkað partý en þá hafði löggan verið búin að koma og eikkað rugl þannig það var bara 18 ára aldurstakmark eða eikkað rugl :S ...þannig Guðjón keyrði okkur bara heim en á leiðinni stoppaði löggann hann víst og hann þurfti að blása :P ...og já keyrði okkur semsagt heim og við vorum komin þangað um 2 leytið og horfðum þá á You, Me and Dupree...ágætismynd :D ...svo bara fórum við að sofa um 4 leytið ...og svo um morguninn þurfti ég að vakna korter yfir 8 til að fara í vinnuna ...ekki skemmtilegt ...svo bara er ég búin að vera í skólanum á fullu núna....komið allt á fullt með heimalærdómi og öllu ....og ég er ekki sátt með það að við þurfum að lesa heilar 4 þykkar bækur í 3 fögum fyrir stuttan tíma 8| ...eigum að klára 300 bls. bók í ensku fyrir 26. janúar, c.a. 250 bls. bók í dönsku fyrir 7. febrúar og nemóvikan er vikan á undan því, aðra bók í íslensku fyrir mars og svo enn aðra í íslensku sem ég man ekki hvað var fyrir ....ég á ekki eftir að geta lesið bækurnar sem ég fékk í jólagjöf fyrr en í sumar eða eikkað :S ...en jæja ....þetta fylgir víst að vera í skóla...endalaus heimavinna :S ...en já ég held ég sé bara farin að bulla eikkað ...svo stelpur þið eruð næstar að blogga...sérstaklega Tinna ! ....verum svo duglegar á þessu ári ! ...og þurfum líka að taka fleiri myndir á þessu ári ...en er hætt...bæbæ..

Katrín;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.01.2007 19:16:31 / Fanney

******* H E L L É !! *******

 hæj hvað segið þið gott ? En já Gleðilega hátíð, þetta verður geðveikt ár. Ég veit það. Svo fáum við bílpróf, og verðum Næstum því sjálfstæðar. hehehe þetta verður bara gaman gaman ;):D..... svo hvað er að frétta af Ykkur..., mig langar að fara að gera einhvað brjálað, hringja í alla góðu vinkonunar úr Rimarskóla.... og hafa ''HITTING'' je babý.... en Ég vil óska landsmönnunm öllum gleðilegra jóla og farsælda á nýju ári, og megi hún ( ég ) Fanney ná stærðfræði þessa önn ;), (K) Lovja píps.. :D bæjó

» 5 hafa sagt sína skoðun