MELONURNAR
24.02.2007 21:54:33 / Katrín

..

jæja þá er loksins komið að mér að blogga :P ...en síðustu vikur hafa bara verið ágætar hjá mér sko ...samt ekki mikið að segja frá ...fór með tinnu, fanney, agnesi, kareni og bjarka í bíó um daginn á Ghost Rider ...ekkert spes mynd fannst mér soldið mikið bull en maður gat nú samt alveg horft á hana ...svo er maður bara búinn að vera á fullu í skólanum ...alltaf jafn mikið að læra :S ...svo er ég búin að vera að vinna líka á fullu ...er einmitt að vinna núna um helgina ...svo var vörutalning um daginn í rúmfatalagernum og var að vinna alveg til hálf 1 annan daginn og svo bara búin snemma næsta dag :) ...þarf svo að fara að gera fyrirlestur núna sem ég nenni ekki að gera eins og þið sjáið :P ..fer bara að blogga í staðinn:lol: en já ætli ég þurfi ekki að skella mér í að klára að læra ? ...hehe en vill líka benda á bloggið hérna fyrir neðan ...sá að stelpurnar voru svo miklir snillingar að þær höfðu hakað við þannig að bloggið mundi ekki birtast á síðunni þannig að ég læt það bara birtast;) ...þannig nú fáið þið 2 blogg ;) ....

Katrín


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 15:34:32 / Tinna Lind

Landmannalaugar

Þetta eru Tinna og Fanney :D Jáhá hvar á að byrja.... Semsagt seint um kveld eftir langan skóla dag. Þá var pabbi inní bílskúr að gera við Rudda ástina í lífinu okkar ;) og við vorum að fara að leggja af í jeppaferð og ætluðum að fara snemma en það varð soldið seint :P en við komumst í Hrauneyjar einhverntímann um nóttina og það var bara svaka stemning þar sko, við vorum me´ð tónlist og dönsuðum og svo fórum við að spila með Alla og Bjarka og við vorum alltaf að vinna þá í olsenolsen :D;)
           Þetta var bara svo mikil snilldarferð að það er ekki hægt að lýsa því en um morgununinn fórum við af stað til Landmannalauga og keyrðum í snjónum :D Verð bara að koma með smá skot, þegar Fanney var að keyra Rudda og kom á sléttu gaf hún barra allt í botn og tók fram úr Alla haha :D Og Bjarki festi sig SEX sinnum í þessari fyrstu jeppaferð sinni á eigin jeppa :P En hann vill meina að það hafi verið bíllinn, hann var á óbreyttum jeppa. Svo þegar Jeppaliðið var komip á staðinn fórum við að leika okkur að keyra Rudda og Alli var að leika sér á sínum bíl honum Sudda og svo ætlaði hann að taka fram úr okkur og fór út fyrir förin en þá festi hann sig og þar sem Fanney var með allt í botni líka og við gleymdum að tengja vifturnar þá ofhitnaði okkar bíll :P En þetta reddaðist svo og Fanney dró Alla upp en þá var Bjarki mættur á svæðið og var eikkað að glannast og festi sig líka þannig að Fanney dró hann líka upp, bara komin með pró í því ;) Svo fór Fanney að keyra Sudda og þá var ég að keyra Rudda og Margrét var líka í bílnum, þetta var algjör snilld, festi mig ekkert en keyrði yfir á og eikkað ;) 
          En við urðum svöng og ætluðum að fá okkur kjúklingabringur en gasið á grillinu var búið og líka kolin á hinu grillinu en Bjarki reddaði þessu og eldaði á pönnu og maturinn var bara góður :D Dvo um kvöldið var farið í náttúrulegan heita pott sem var svo kósí :D Og allir voru búnir að drekka eikkað ;) Svo var bara farið sömu leið til baka á sunnudaginn. Þetta var snilldar ferð og við hlökkum til fara í aðra, bara takk allir :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 21:30:07 / Fanney

Hið umdeilda blogg,,, hér er það ( ef ekki ætli að það væri ekki einhver búin að drepa mig ? ég bara spyr ! )

Mhh... Jæja, víst að þið viljið að ég drífi mig að blogga, þá er eins gott að gera það bara núna víst að ég er ekki of busy :P, En já ...... hvað á ég að segja ykkur, að ég tók minn fyrsta smók um helgina :S... mmm ekki nógu gott....svo kysti ég strák ... veit ekki alveg með það, ekki nógu gott... mér bara líður illa því að ég meinti ekkert með þessum kossi skiluru.... kanski ekki. En svo bara hef ég verið að fíla mig geðveikt í skólanum. hahah það er svo gaman, ég var niðri í matsal svo kem ég ahhahahah.. og áður en ég veit af þá er ég kölluð fanney og kötturinn, sem þróaðist úrí The Catwoman, hahah og allt útaf hárgreiðslunni :P (a) Og sei sei, og ég held að ég er ekki sú típa að reykja ! neeeiiibb.. als ekki vá hvað mér svimaði í dag :O shit, ég reykti eina sígó, og hahahhaha það var svo fyndið og  ég labbaði með Agnesi og Elsu útí Hraunbæjar sjoppu haha og ég lét hendurna svona uppá hátt borðið og ég hitti næstum ekki :'D lol... en hvað get ég sagt ykkur meira... LANDMANNALAUGAR um helgina :D já já rosa spennandi Tinna mín kemst kanski með en annars verður megnið af fólkinu þarna unglingar 15-21 kanski :D ;) úhú, very nice og kanski að maður taki með sér smá Pina Colado, eða vodka blue :P heheh ;) Já..... Það er alltaf gaman að mæta í skólann, ég elska það að keyra upp brekkuna, sem maður keyrir upp til að fara í Breiðholt baara... mmm... Skóli og krakkanir :) :D hey ég tala seinna ! :D

 

Ps. Er komin með æfingarakstur :D:D júhú


» 16 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 12:36:37 / Katrín

Gestabloggari

Já sæl ...honum Bjarna langaði til þess að bloggið sitt yrði birt hérna þannig að ég ætla bara að leyfa honum það ;) ..þar sem stelpurnar eru ekki að standa sig ...sérstaklega Fanney ..! ...hvar ertu eillega ?? ..ég hef ekki heyrt í þér í næstum mánuð ...þetta gengur ekki en allavega þessu langaði honum Bjarna að koma á framfæri....

ég ætla að segja sögu af mjög skemmtilegum atburði sem að henti mig eitt sinn á skítugum bar í miðbæ reykjavíkur.

Barinn var skítugur en svona var lífið bara þegar maður var 17 ára. Stundum þurfti maður að sætta sig við skítinn sjálfan. Við komum inn á barinn og urðum brátt vitni af slagsmálum. þetta var yfir einhverju dóp veseni . . ok ok þetta róaðist.
Svo stuttu seinna var ég kominn á fullt í að spila billjard og var alveg búinn að gleyma öllu nema borðinu sem að við vorum að spila á. Svo Skít ég þarna kúlu út af borðinu með þeim afleiðingum að hún lendir þarna við næsta borð. það er horft á mig með morðglampa í augum og sagt "Rólegur á sterunum" ég horfi flóttalega á mannin sem sagði þetta en kom honum ekki fyrir mig. Ég brosi og sendi honum " bara góður sko " augnaráð en veit ekki fyrr en að ég er farinn að spila aftur billjard en er þó passasamari því að ég hefði ekki viljað sjá upplitið á honum ef að kúlan myndi lenda í honum. sko núna er ég búinn að blogga hérna og ég vil bara að þetta verði sett inn sem blogg . . . .eru ekki allir game í það ? eða hvað ?

 og Fanney...blogga ...þú ert næst ;) ..

 kveðja Katrín


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.02.2007 14:16:20 / Tinna Lind

gamalt blogg

Hahaha ég var að skoða gömul blogg á þessari síðu og Katrín bloggaði þegar við vorum nýbúin að skoða MR, ég ætla bara að skella þessu aftur inn:

hæhæ....langaði að skella inn einu bloggi 0 ..fórum í dag að heimsækja MR, ekki spes skóli að mínu mati 0 það var eins og að koma á árbæjarsafnið þegar maður fór þangað inn 0 en annars voru fínar stofurnar í nýju húsunum en ég ætla allavega ekki í MR0  svo bara fórum við í strætó heim og svo fékk ég mér aðeins að borða og sonna....en hey, er búin að setja myndirnar frá skautunum inná 0 var líka að uppfæra nýverandi hjá mér...en hætti hér 0 sjáumst 0

...svo kom comment frá mér: Mér leist alveg ágætlega á MR nema bara soldið þröngt en náttúrufræðistofurnar voru samt svo flottar :P Það er líka gott félagslíf þarna og þetta er örugglega bara fínasti skóli
-***

mér finnst þetta allvega snilld og ég sé ekki eftir því að hafa farið í MR :D haha Katrín þú ert svo snobbuð eina ástæðan fyrir að þú fórst ekki í MR var húsnæðið :P En jam ég fór ekki í skólann í dag því ég er veik :S og ég missti af söguprófi en það er ekki gott því ég hef alltaf verið með svo lágar einkunnir í sögu og ég kunni þetta alveg ágætlega þannig að ég hefði kannski getað hækkað mig aðeins :P Ég var með hósta alla seinustu viku en fór samt alveg í skólann en svo fór ég með Fanney og og fleiri krökkum heim til Krissa á laugardagskvöldið sem er vinur Jóns Andrésar og það var alveg fínt svo komu líka einhverjir vinir Krissa og þau voru öll að drekka nema ég. En ég varð veik eftir þetta kvöld :S En ég fer örugglega í skólann á morgun eða vonandi :) well ég er farin að lesa í hobbitanum fyrir ensku ;)  


» 13 hafa sagt sína skoðun

04.02.2007 18:42:37 / Katrín

Nemó :D

Hæhæ ...þá eru komnar nýjar myndir frá Nemó deginum sem var btw geeeðveikur :D ...og ætla ég að segja aðeins frá honum hérna ;) ..

Fyrst var mætt í morgunpartý til Önnu Fríðu kl. 8:00 og þar var bara svona kósý stemming...allir að borða morgunmat saman og svona :D

 
Lilja og Anna Lísa                            Anna Lísa og Kolbrún

Svo löbbuðum við uppí Austurbæ og fórum á leikritið 16 sem er Nemósýningin í ár :) ...hún var bara mjög skemmtileg og Reynir var sko að standa sig á sviðini ...hahaha ....

 
Kolbrún, Anna Lísa og Lilja            Ég og Helena

Svo lá leiðin í keilu og tókum við strætó þangað og ég byrjaði bara mjög vel með eina fellu :D ...svo voru margir sem fóru í danstækið sem er komið þangað :P ...en svo fór maður bara heim að taka sig til fyrir ballið og svona ...ég fór svo til mömmu Tinnu Lindar í hárgreiðslu og svona ...

 
Fólk                                           Stefanía og Lilja einbeittar í danstækinu :P

Svo lá leiðin á Hereford að borða og voru þá allir komnir í sitt fínasta og svona :D ...ótrúlega góður maturinn líka ...sérstaklega eftirrétturinn :D

 
Kolbrún, Anna Lísa og Stefanía   -    Ég, Ásta, Helena, Lilja, Stefanía, Anna Lísa og Kolbrún

Svo fórum við með rútu í fyrirpartýið og þar var sko stuð :D ...vorum þar til korter í 11 og þar voru margir komnir vel í það :P ...haha og Helena þú varst sko hress :'D

 
Lilja                                                    Kolbrún
 
Ásta, Snorri og Anna Lísa                             Fólk
 
Helena HRESSA                       Lilja og Pétur í trylltum dansi :P ..
 
Anna Lísa, Helena og Ásta              Tinna Lind og Helena
 
Tinna Lind og ég                      Rakel, Kristín, Kristjana og Lilja

svo var farið með rútu á ballið og svo var það bara Broadway og sálin var að spila og svo líka DJ Páll Óskar ;) ...á ballinu hittum við svo líka mikið af fólki :) ..hittum meðal annars Söru Hvanndal, Tinnu, Sólveigu og co, fólk sem tinna þekkti og fólk sem ég þekkti og svo hittum við líka hann Stefán gamlan bekkjarbróðir úr 4. bekk eða eikkað ...og svo fullt fleira ...svo var Tinna líka á endalausunm sénsum ;) ...þurfti alveg að hrinda þeim í burtu :P ...haha ....

 
Í rútunni ...klikkað lið eins og þið sjáið :P ..           Tinna Lind og Sara
 
Helena hressa og Bjarki                                 Fólk
 
Hanna, Arna og Magga                        Tinna Lind og ég

já þetta var sko geðveikur dagur :D ...takk æðislega fyrir mig 3-V og Tinna ...þetta var geeeðveikt  :D

Katrín


» 5 hafa sagt sína skoðun